Bláfjallagöngunni 2020 aflýst!
Við verðum því miður að tilkynna að göngunni þetta árið hefur verið aflýst.
Samkomubann rennur út 4. maí ef allt gengur upp, en við teljum ekki forsendur fyrir því að halda Bláfjallagöngu eftir að því lýkur. Við höfum unnið mikla vinnu og lagt út í mikinn kostnað vegna göngunnar og þar sem samkomubann var sett á 6 dögum fyrir settan dag þá má segja að allt hafi verið klárt.
Í skráningarskilmálum kemur fram að ekki verði endurgreitt ef þessi staða kemur upp, en okkur langar þrátt fyrir það að bjóða öllum þeim, sem höfðu skráð sig, 50% afslátt af skráningargjaldinu að ári, það er í mars 2021. Upplýsingar um hvernig má virkja afsláttinn verða sendar á þá sem voru skráðir í gönguna 2020 þegar opnað verður fyrir skráningu fyrir gönguna 2021.
Um leið og við þökkum ykkur öllum fyrir veturinn þá minnum við á að það er ennþá hægt að komast á gönguskíði í Bláfjöllum og hægt að fylgjast með opnun á skidasvaedi.is
Sjáumst í Bláfjallagöngunni 2021 og gangi ykkur öllum vel í þeim verkefnum sem framundan eru.