Nú fer hver að verða síðastur að skrá sig í Bláfjallaskautið sem er góð upphitun fyrir Bláfjallagöguna á laugardaginn. Skautið fer fram á morgun fimmtudag.
Skráning í fullum gangi fyrir skautið á morgun og gönguna á laugardag á netskraning.is/blafjallagangan
Veðurspáin er að skána fyrir laugardaginn og má búast við fínu skíðaveðri og góðu færi.
Vinsamlegast kynnið ykkur eftirfarandi atriði:
- Braut: Kort af brautinni má finna hér og á forsíðunni.
- bannað að nota skautatak í keppninni á laugardaginn nema þar sem ekki eru spor í kröppum beygjum.
- Góð regla er að vera hægra megin í sporinu og nota vinstra sporið til að fara framúr. Sýnum hvort öðru virðingu í sporinu.
- Þátttakendur í Bláfjallagöngunni vinsamlegast ekki koma með fatatöskur eða aðrar stórar töskur inn í nýja Ullarskálann. Þó svo skálinn sé stærri en sá gamli, þá safnast saman mikill fjöldi fólks á háannatíma og þá viljum við að það sé pláss fyrir alla sem eru inni án þess að töskur eða bakpokar séu að þvælast fyrir.
- Gamli Ullarskálinn (Þóroddsstaðir) er nú orðinn smurninghús og þar inni eiga bara að vera skíði, áburður og keppendur. Ekki skíðapokar eða aðrir pokar – til að spara pláss.
- Hægt er að geyma poka eða töskur í einkabílunum og/eða í tjöldum sem sett verða upp við marksvæðið.