Nú er snjórinn loksins búinn að láta sjá sig og styttist í Bláfjallagönguna og Bláfjallaskautið! Bláfjallaskautið fer fram fimmtudaginn 19. mars kl 18 og Bláfjallagangan sjálf laugardaginn 21. mars. Báðir viðburðir eru við Ýdali, skála Skíðagöngufélagsins Ullar í Bláfjöllum.
Skráning er í fullum gangi og fer fram hér: Bláfjallagangan 2026 | Netskraning.is
Dagskrá:
Fimmtudagur 19. mars:
Afhending keppnisgagna fyrir Bláfjallaskautið fer fram í Ýdölum, skála Skíðagöngufélagsins Ullar í Bláfjöllum frá kl 17 á keppnisdag
18:00 Ræsing í Bláfjallaskautinu (skaut/frjáls aðferð) 1km, 5km, 10 km og 20 km. Hópstart
Föstudagur 20. mars
Frá kl. 16 – 18: Afhending keppnisgagna í Fjallakofanum, Hallarmúla 2
Laugardagur 21. mars:
09:00: Ræsing fyrir keppendur í 40 km. Hópstart
10:00: Ræsing fyrir keppendur í 5 km, 10 km og 20 km. Hópstart
Kaffihlaðborð í Ýdölum skála Skíðagöngufélagsins Ullar í Bláfjöllum að lokinni göngu
12:30 Verðlaunaafhending í Ýdölum