Áburðartips!

Það á að snjóa í nótt. Hins vegar þá mun troðaramaðurinn skafa þann snjó úr brautinni og fara niður í gamla grófa snjóinn. Sem þýðir klísturfæri fyrir þau sem eru með áburðarskíði. Breytir litlu fyrir skinnskíðin.

Rennslisáburður:

  1. Hreinsið skíðin mjög vel með Swix hreinsiáburði.
  2. Látið þorna á þurrum stað í 10 – 15 mín.
  3. Bræðið Marathon (fluor free), hvítt við 155°C.
  4. Kælið. Skafið með plastsköfu og svo messing-bursta.
  5. Bræðið því næst PS7 fjólubláan Swix (dýrari og betri) eða HS7 (ódýrari og ekki alveg eins góður). Þeir sem vilja, þá væri jafnvel enn betra (en dýrara) að bræða TS7B sem efsta lag. Eða spreyja TS7 og þurrka og róta með ull og borvél.
  6. Kælið. Skafið með plastsköfu ef þið notið PS7, HS7 eða TS7B, og svo plastbursta (rótor enn betri (með borvél og bursta á hana)).
  7. Þurrkið með pappír. Óþarfi að setja rillur í þessum grófa og gamla snjó.

Festiáburður (fyrir smurningsskíði):

Eins og spáin er núna þá á að frysta svolítið í nótt og snjóa. Troðaramaðurinn mun skafa nýja snjóinn úr brautinni og fara niður í gamla snjóinn. Þó er mögulegt að einhver nýr snjór verði eftir á köflum.

  1. Strjúkið sandpappír (100 í grófleika) yfir miðjuna.
  2. Spreyið grænum Swix KB20 þunnt á miðjuna. Strjúkið vel út þannig að það sé þunnt lag af þessu. Kælið vel. Jafnvel yfir nótt.
  3. Multigrade frá Rode eða KN44 frá Swix. Sennilega er betra að vera með T-Line frá Rode -6°-+6° eða KN33 frá Swix. Það þyrfti að prófa á staðnum. Þeir þola betur nýjan snjó (ef það verður eitthvað eftir af honum eftir troðsluna).

Skinnskíði:

  1. Hreinsið skinnin vel með þar til gerðum hreinsilegi frá Swix. Ættuð ekki að þurfa að setja sílikon á skinnin þar sem það verður enginn eða lítill nýr snjór sem gæti fryst í skinnunum, en sakar ekki að gera það.
Share