Vegna veðurspár hefur verið tekin ákvörðun um að fresta ræsingu í Bláfjallagöngunni til kl 13 á laugardaginn.
Eins og veðurspá er núna á að vera nokkuð hvasst á laugardagsmorgun en vindur á að ganga niður um hádegi á laugardag.
Ræsing verður fyrir 40km kl 13 og fyrir 20km, 10km og 5km kl 13.30 (hópstart)
Uppfærð dagskrá lítur þá þannig út:
Föstudagur 20. mars
Frá kl. 16 – 18: Afhending keppnisgagna í Fjallakofanum, Hallarmúla 2
Laugardagur 21. mars:
Bláfjallagangan
13:00: Ræsing fyrir keppendur í 40 km. Hópstart
13:30: Ræsing fyrir keppendur í 5 km, 10 km og 20 km. Hópstart
Kaffihlaðborð í Ýdölum skála Skíðagöngufélagsins Ullar í Bláfjöllum að lokinni göngu
16:00 – 16.30 Verðlaunaafhending í Ýdölum
Sjáumst á laugardaginn
