Eftir áframhaldandi rýni í veðurspá hefur verið tekin ákvörðun í samráði við starfsmenn í Bláfjöllum að fresta ræsingu í Bláfjallagöngunni enn frekar og nú til kl 14 fyrir 40km og kl 14.30 fyrir aðrar vegalengdir. Eins og staðan er núna á að vera nokkuð hvasst á laugardagsmorgun en á að ganga niður um hádegi á laugardag.
Start verður fyrir 40km kl 14 og fyrir 20km, 10km og 5km kl 14.30 (hópstart)
Uppfærð dagskrá lítur þá þannig út:
Föstudagur 20. mars
Frá kl. 16 – 18: Afhending keppnisgagna í Fjallakofanum, Hallarmúla 2
Laugardagur 21. mars:
Bláfjallagangan
14:00: Ræsing fyrir keppendur í 40 km. Hópstart
14:30: Ræsing fyrir keppendur í 5 km, 10 km og 20 km. Hópstart
Kaffihlaðborð í Ýdölum skála Skíðagöngufélagsins Ullar í Bláfjöllum að lokinni göngu
17:00 – 17.30 Verðlaunaafhending í Ýdölum
Enn er hægt að skrá sig og hvetjum alla til að taka þátt í þessum skemmtilega viðburði: https://netskraning.is/blafjallagangan/
