Stefnir í flott veður fyrir Bláfjallagönguna!

Veðrið virðist ætla að leika við okkur á morgun í göngunni, sól og þægileg gola. Fyrir þá sem ekki hafa skráð sig minnum við á Bláfjallagangan er almenningsganga og ætluð fyrir skíðaiðkendur af öllu getustigi. Markmiðið er að taka þátt, klára og njóta. Skráningarfrestur (skrá sig hér) rennur út í dag kl. 16:00 og kl. 18:00 líkur afhendingu keppnisgagna í Everest, Skeifunni 6.

Við minnum svo alla keppendur á það er frítt í sund fyrir keppendur í Dalslaug og kl. 14:30 hefst Verðlaunaafhending og kaffihlaðborð hjá í sal Fram í Úlfarsárdal. Þar verða dregin út fjöldi útdráttarverðlauna frá styrktaraðilum okkar.

Hlökkum til að sjá ykkur!

Share