Bláfjallaskautinu flýtt til miðvikudagsins 18. mars!

Bláfjallaskautinu flýtt til miðvikudags 18. mars!

Vegna veðurspár hefur verið tekin ákvörðun um að flýta Bláfjallaskautinu til miðvikudagsins 18. mars kl 18. Veðurspáin er því miður ekki góð fyrir fimmtudaginn 19. mars en miðvikudagurinn lítur mjög vel út! 🤩

Sjáumst vonandi sem flest í Bláfjallaskautinu á miðvikudaginn ⛷🎉

Dagskráin fyrir Bláfjallaskautið og Bláfjallagönguna verður þannig eftirfarandi:

Miðvikudagur 18. mars:

👉 Afhending keppnisgagna fyrir Bláfjallaskautið fer fram í Ýdölum, skála Skíðagöngufélagsins Ullar í Bláfjöllum frá kl 17 á keppnisdag

👉18:00 Ræsing í Bláfjallaskautinu (skaut/frjáls aðferð) 1km, 5km, 10 km og 20 km. Hópstart

Föstudagur 20. mars

👉Frá kl. 16 – 18: Afhending keppnisgagna í Fjallakofanum, Hallarmúla 2

Laugardagur 21. mars:

👉09:00: Ræsing fyrir keppendur í 40 km. Hópstart

👉10:00: Ræsing fyrir keppendur í 5 km, 10 km og 20 km. Hópstart

Kaffihlaðborð í Ýdölum skála Skíðagöngufélagsins Ullar í Bláfjöllum að lokinni göngu

👉12:30 Verðlaunaafhending í Ýdölum

Þeir sem að voru búnir að skrá sig og komast ekki í Bláfjallaskautið á miðvikudaginn geta sent póst á ullarpostur@gmail.com til að óska eftir endurgreiðslu.

Share